Nýjar myndir í myndasafni
Búin að setja myndir frá apríl og maí í myndasafnið. Er að vinna í afgangnum...
Fyrstu skrefin
Hákon Hinrik er í mjög góðum gír þessa dagana. Hann er farinn að standa óstuddur og búin að taka allra fyrstu skrefin. Þetta er þó ekki alveg komið með labbið en stutt í það... Maður er bara miklu fljótari að skríða þetta...
Þessi 1 árs aldur er í miklu uppáhaldi hjá mér, það er mikið um að vera, alltaf verið að brasa eitthvað, hræra í pottum, babla, knúsa, klappa, standa og skríkja. Maður er líka að fatta hvað mamma manns er frábær og skellir stundum einum vel blautum á hana...heh
Við Reynir skelltum okkur til Berlínar síðustu helgi og alltaf jafn gott að komast aðeins í burtu. Fá smá sól og slappa af. Hákon var hjá ömmu sinni á meðan og það var bara rosa stuð hjá kallinum í helgarfríi á Skaganum. Svo tók ég mér frí í síðustu viku og var í mömmuleik með Hákon. Ekki slæmt að taka smá forskot á sumarfríið.
Sem sagt bara góð stemning í Mávahlíðinni og engum sem leiðist að sumarið sé að ganga í garð og auðvitað eru miklar væntingar um sól og sumarblíðu á næstu mánuðum... :)
1 árs strákur
Löngu kominn tími á blogg og nýjar myndir hérna....
Litli drengurinn minn er orðinn stór krakki og búinn að halda upp á fyrsta afmælið sitt.
Karlinn var reyndar hálf slappur á afmælisdaginn eftir öll veikindin í mars. Tók út tvær svaka pestir sem lentu hver ofan í annarri. Þar sem hann sat bara dofinn í fanginu á manni með bullandi hita. Seinni pestin endaði með pensilíni pústi og öllum græjum...
En gaurinn er allur kominn til og farinn að vera hjá dagmömmunni aftur.
Verð að segja að fyrsta árið í lífi fyrsta barnsins míns var alveg skuggalega fljótt að líða. Maður er rétt svo að venjast hugmyndinni um að maður eigi lítið barn og allt í einu er maður bara að halda upp á barnaafmæli eins og ekkert sé sjálfsagðara. “Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag....” og allur pakkinn;)
Drengurinn er líka orðinn svo fullorðinslegur sí bablandi (á sínu tungumáli þó), geysist hér um allar trissur, og nær með ótrúlegum brögðum í allt sem hann á ekki að ná í. Rífur upp allar skúffur og mokar upp úr þeim á gólfið. Algjör perla.
Settið er hinsvegar farið að telja niður dagana fyrir fyrirhugaða Berlínarferð í byrjun næsta mánaðar. Jibbý! Langþráð ferð út á Leifstöð:)
Búin að setja inn myndir frá febrúar og mars í myndasafnið
Verslunarferð með Hákoni
Það getur verið gaman að fara með Hákon Hinrik minn í búð. Þá hefur hann nóg að skoða, spá og spekulera. Stundum er hann mest spenntur yfir hinu fólkinu og gerir mikið til að ná athygli þess. Hækkar róminn “da da da da” svo það fer ekki fram hjá neinum og svo kastar hann brosi á þá sem falla fyrir bragðinu. Það er líka merkilegt hvað hann nær að laða fram einlæg og breið bros hjá ótrúlegasta fólki sem er þungbúið í verslunarferð....:)
Dagvistun
Góðar og frábærar fréttir! Hákon er líklegast komin með dagmömmu eða konu sem er til í að passa hann meðan við Reynir erum í vinnunni. Það er sko þokkalegu fargi af manni létt þegar maður sér að þetta geti jafnvel verið að ganga upp. Hann er búinn að fara núna tvisvar sinnum í rúman klukkutíma og allt hefur gengið vel.
Ég er búin að liggja í símanum og hringja hingað og þangað, leikskóla og dagmömmur frá því að barnið var nokkurra vikna, og fá eintóm nei og því miður. Þangað til um daginn að þessi góða kona sagðist vera til í að passa barnið og maður var sko fljótur að bíta á agnið:) Hún er með tvö önnur börn sem eru á svipuðum aldri og Hákon, svo það verður bara svaka stuð fyrir kallinn að losna aðeins við gamla settið og leika við krakkana.
Hákon gerir manni þetta líka auðveldara fyrir, hann er svo spenntur þegar hann kemst í nýtt umhverfi að honum er sko alveg sama þó mútterin láti sig hverfa. Ég er svo fegin að þurfa ekki að skilja hann grátandi eftir einhverstaðar þegar maður þarf pössun. Það yrði náttúrlulega óbærileg kvöl fyrir móðurhjartað...
Annars er ég aðframkomin af þreytu eftir hvern daginn. Veit ekki hvað þetta er með mig... Erfitt að venjast þessu litla svigrúmi að mæta klukkan hálf átta, átta í vinnunna og þurfa helst að fara að sofa klukku tíma eftir að litli maður sofnar...
En eins og sagt hefur verið: “This family has to rest a lot”! hehehe
Hversdagsleikinn og snjórinn
Daglegt líf og amstur gengur barasta fínt í Mávahlíðinni þessa dagana. Hákon er á fleygiferð um allt, og mamman og pabbinn fylgja fast á eftir " Ekki þetta Hákon, NEI", "Sjáðu dótið þitt, leiktu með dótið þitt", "innstungan, óóó, NEI NEI", "komdu, ekki þetta".......
Kannski eitthvað til í því sem skemmtileg 3 ára frænka mín syngur: "Þetta fullorðna fólk er svo skrítið, alltaf að skamma mann, það gerir aldrei neitt, bara alltaf að skamma mann":-)
Maður fær hressilega að finna fyrir vetrinum þessa dagana. Enda rúllar fólkið á þessu heimili út eins og snjóboltar í hvert sinn sem farið er út fyrir hússins dyr:) Ullarpeysa og gönguskór er eitthvað sem komið hefur sér vel þessa síðustu daga.
Við erum líka aðeins farina ð leyfa Hákoni að leika í snjónum, eins og hverjum öðrum stórum krakka. Það er reyndar svoldið erfitt að hreyfa sig þegar búið er að dúða mann upp úr og niðrúr, en þar sem minn maður er nú svoldið mikið fryir að horfa, spá og spökulegra við nýjar aðstæður, þá er þetta nú bara svoldið sport.
jólin og nýja árið...
Jæja, loksins komin helgi, eftir erfiða vinnuviku. Þá er tilvalið að dúndra nokkrum myndum inn á netið af snillingum, og öðrum þeim er þar koma við sögu.

það eru s.s. nýjar myndir í myndasafninu, eða eins og Hákon myndi sjálfur segja "ETTA!!!"
Gleðilegt nýtt ár!
Þá er enn og aftur komið nýtt ár. Að baki mjög svo merkilegt ár hjá okkur í Mávahlíðinni. Maður á eflaust eftir að rifja nokkrum sinnum upp þetta merkisár, enda ekki á hverju ári sem maður elur af sér barn (sem betur fer, reyndar:)). 2007 er líka árið sem við fjölskyldan fluttum í Mávahíðina og við Reynir seldum íbúðirnar okkar.
Til hvers að fara rólega í hlutina??..;)
Árið 2008 er það helst á dagskránni að fara í skóla, eignast lítinn frænda eða frænku og halda áfram að ala upp grislinginn minn.
Annars höfðum við það einstaklega ljúft um jólin. Þrátt fyrir að maður hafi oft náð að hangsa meira og hvíla sig, en það þarf víst að sinna þessum afleggjurum um jólin líka:)
Læt fylgja áramótamynd af uppáhalds frændunum mínum, sem voru duglegir í stjörnuljósunum á gamlárskvöld.
Jólaundirbúningur...
Í tilefni jólana, höfum við með liðsauka verið að pakka inn og laga til á fullu upp á síðkastið. Liðsaukinn er Nikki frændi....
hér má sjá liðið við störf: http://www.elfyourself.com/?id=1680704127
jíííííhaaaaaaa!!!

